Leita í fréttum mbl.is

Stórar hátíðar-auglýsingar stórfyrirtækja : Hver er tilgangurinn?

Er aðeins búinn að vera að velta fyrir mér þessu með hinar stóru "hátíðar auglýsingar" stórfyrirtækja um áramót og þá sérstaklega þessar virkilega stóru.

Man eftir því frá hér í den og fyrir einkavæðingu bankanna að það var fastur liður að þeir (og kanski Eimskip og örfá önnur fyrirtæki) kæmu nánast allir með einhverjar fallegar vídeóklippur af; landinu, fólkinu og ýmsu öðru í óvenju löngum auglýsingum fyrir áramót með engu öðru innihaldi en nafni sínu aftanvið auglýsinguna og svo einhverju eins og "nnnn-fyrirtækið óskar lansdmönnum gleði og gæfu á nýju ári".  Á þeim tíma voru þetta "stóru" auglýsingar stórfyrirtækjanna sem settar voru í birtingu í Sjónvarpinu og Stöð 2 í einn til þrjá daga um hver áramót og sumir voru með opnu eða opnur i stærri blöðum.  Þessu gátum við gengið að sem vísu og var þetta ákveðin tilbreyting í auglýsingaflóruna, en hvort þetta virkaði á einn né neitt eða á einhvern hátt - það hef ég mínar efasemdir um.

En að einhverju leiti er þetta enn svona.  Nú eru það bara hin nýju stóru fyrirtæki sem senda svona frá sér.  Man allavega eftir einni frá Baug þessi áramót og man ekki hvort það var ein svona stór frá KB-banka núna eða hvort í minninu er ein frá fyrra ári að þvælast fyrir.  Allavega einhver af þessum stór fyrirtækjum eru enn með svona stóra vídeó-klippu-auglýsingar í birtingu nú um hátíðarnar. 

Það sem ég er að velta fyrir mér er, hver er hinn raunverulegi tilgangur og ávinningur hjá nýju stóru nútímafyrirtækjum ?

Hér áður var þetta að hafa svona stórar auglýsingar um áramót, að því er mér virðist, einskonar "reðursamanburðar" keppni stóru (ríkisreknu) bankanna um hver væri það árið með fallegustu "skotin" af náttúru Íslands.  Hin mögulega skýringin sem mér dettur í hug á hvers vegna þessar auglýsingar voru hér áður fyrr, er kansi að þetta hafi verið möguleg tól þeirra sem raunverulega réðu, til að tryggja auglýsingastofum og stóru miðlunum á kurteysan máta góðar tekjur við árslok.  En þetta finnst mér mjög hæpin skýring.

En núna. Hví eru nútímafyrirtækin í þessu í dag?  Svona "samanburðarkeppni" er væntanlega ekki neitt sem einkafyrirtæki á heimsvísu fara að taka þátt í.  Hvað er þá eftir?  Líklegast væri að telja að þetta væri eins og svo margt annað tengt nútímanum, markaðssetning.  En hvað er þá verið að markaðssetja?  Jú þá hlýtur það að vera vörumerkið, nafnið á fyrirtækinu og ímynd þess því ekki er verið að auglýsa vöru eða þjónustu í þessum risa "við erum stórir, góðir og allstaðar" auglýsingum.   Ég í mínum huga hef efasemdir að svona aðferðir, einu sinni á ári séu skásti kosturinn til að viðhalda góðu vörumerki og ímynd þess.

En ef tilgangurinn er ekki að viðhalda vörumerki eða ímynd, hver er þá tilgangur þessara stóru auglýsinga?  Ekki hef ég trú á að umræddar auglýsingar og tilurð þeirra sé á neinn hátt ölmusu til þeirra sem að framleiðusu eða birtingu þeirra koma.  Hvað er þá eftir sem mögulegur tilgangur þeirra?  Aftur fer mér að detta í hug hofmóðgi eða eitthvað í líkingu við það sem ég ritaði áður, "reðurstærðarsamanburður"!  Getur það verið?  

Undantekning á því sem er í gangi þessi áramót tengt stórum auglýsingum og er líklega auðskildara en annað eru hinar stóru auglýsingar frá Alcan.  Þar er jú að hefjast að ákveðnu leyti barátta þeirra fyrir tilvist sinni til lengri tíma þar sem þeir þurfa jákvætt attitút og nógu mörg "já" í kosningu á komandi mánuðum. 

Nú er ég ekki mikið inni í markaðsmálum, er að mestu þokkalega upplýstur neytandi en ekki mikið meira.  Kanski er einhver sem vel er að sér í hinum mikilhæfu markaðsfræðum sem getur upplýsti mig, þó síðar verði, um hver sé hinn rauverulegi tilgangur þessara stóru "hátíða auglýsinga" stórfyrirtækjanna í miðlunum og hvernig mæla menn svo árangurinn af því sem gert er?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

S. Hjörtur Guðjónsson
S. Hjörtur Guðjónsson
Hefur skoðanir á allflestu sem mannskepnunni getur verið viðkomandi, en lætur þær þó fjarri lagi allar uppi. Er ekki í framboði til eins né neins (eins og virðist vera um glettilega marga bloggara).
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband